Dekkjaskipti

Hvað eru þau og hvað kosta þau?

Dekkjaskipti eru þegar heilum dekkjagöngum á felgum er skipt undir bílnum. Þetta er þjónustan fyrir þau sem eiga tvo ganga: sumardekk á felgum og vetrardekk á felgum. Ef dekkin þín standa felgulaus í geymslunni þarftu umfelgun. Ekkert dekk er tekið af felgu í dekkjaskiptum, þess vegna eru þau fljótlegri og talsvert ódýrari en umfelgun.

Dekkjaskipti á fólksbíl kosta núna 5.500-12.990 kr. hjá 23 verkstæðum - sjá samanburð (verð síðast staðfest 23. ágúst).

Hvað er gert í dekkjaskiptum?

Bíllinn er lyftur, dekkin fjögur á felgunum tekin undan, hin sett undir og felguboltarnir hertir með réttu átaki. Verkstæðið athugar loftþrýsting og pumpar í rétt gildi. Vandað verkstæði minnir þig líka á að láta herða boltana aftur eftir 50-100 km - það er eðlilegt öryggisatriði eftir dekkjaskipti, ekki merki um slæleg vinnubrögð.

Það sem dekkjaskipti innihalda ekki:

  • Jafnvægisstillingu - dekkin á felgunum halda lóðunum sínum milli árstíða, svo hún er alla jafna óþörf. Finnir þú titring í stýri eftir skiptin er jafnvægisstilling sér þjónusta á sér verði.
  • Viðgerðir - komi í ljós gat eða skemmd er dekkjaviðgerð sér verk.
  • Geymslu - gangurinn sem fer undan fer heim með þér nema þú kaupir dekkjahótel.

Dekkjaskipti eða umfelgun - hvort þarf ég?

Sama einfalda reglan og áður: horfðu á ganginn sem bíður í geymslunni. Standa dekkin á felgum? Þá dekkjaskipti. Eru þau felgulaus? Þá umfelgun. Ef þú ert að kaupa ný dekk á gömlu felgurnar er það alltaf umfelgun.

Að eiga tvo ganga á felgum kostar meira í upphafi (auka felgugangur) en borgar sig oft á nokkrum árum: hver árstíðaskipti verða ódýrari, hraðari, og dekkin slitna síður við að fara sí og æ af og á felgur. Í samanburðinum okkar sérðu verðmuninn á þjónustunum tveimur svart á hvítu - en aldrei í sama listanum, því verkin eru ekki sambærileg.

Hvenær á að skipta?

Sömu vertíðir og í umfelgun: október-nóvember og apríl-maí. Nagladekk eru heimil 1. nóvember til 14. apríl; utan þess tímabils eru þau óheimil „nema þess sé þörf vegna akstursaðstæðna“ (reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja, liður 16.02(6)) - snemmbúinn snjór í október fellur undir það frávik. Dekkjaskipti eru fljótlegri en umfelgun, svo röðin gengur hraðar hjá verkstæðum sem taka á móti fólki án tímabókunar - merkingin „Mæta án tíma" í samanburðinum segir hverjir það eru.

Munurinn á sumar- og vetrardekkjum er meiri en margir halda: gúmmíblandan í vetrardekkjum er mýkri og heldur gripi í kulda, en slitnar hratt á heitu malbiki á sumrin - og sumardekk harðna og missa grip þegar hitinn nálgast frostmark. Skiptin snúast því ekki bara um snjó heldur um hitastig.

Get ég ekki bara skipt sjálf(ur)?

Jú - dekkjaskipti eru það verk sem flest geta gert heima með tjakki og felgulykli. Verkstæðið hefur samt þrennt fram yfir bílskúrsgólfið: réttu átökin á boltana (felguró sem er hert of fast eða of laust er raunverulegt öryggismál), loftþrýsting stilltan í leiðinni, og augun sem sjá óeðlilegt slit eða skemmd sem þú tekur ekki eftir. Fyrir 5.500 kr. (lægsta staðfesta verð) kaupa margir sér einfaldlega tímann og vissuna.

Algengar spurningar

Hvað taka dekkjaskipti langan tíma? Oftast 15-30 mínútur.

Þarf að jafnvægisstilla við dekkjaskipti? Alla jafna ekki - lóðin sitja á felgunum milli árstíða. Titringur í stýri eftir skiptin er merki um að stilla þurfi af.

Geyma verkstæðin ganginn fyrir mig? Mörg þeirra, gegn gjaldi - sjá dekkjahótel. Athugaðu að geymslan er oftast bundin því að verkstæðið sjái líka um skiptin.